fimmtudagur, 12. maí 2005

Minnkandi hlátur í Evrópu...
Á undanförnum áratugum hefur kaupmáttur Evrópubúa aukist verulega, híbýli þeirra stórbatnað og veraldlegur auður vaxið gríðarlega.

Þrátt fyrir það hlæja Evrópubúar þrisvar sinnum minna í dag en þeir gerðu fyrir 50 árum.

Það fæst sem sagt ekki allt með auknum kaupmætti...

Gleðilega helgi...
Kúrbíturinn óskar aðdáendum sínum nær og fjær, til sjávar og til sveita, lágum sem háum, ungum jafnt sem gömlum, dökkhærðum sem ljóshærðum, slétthærðum og skollóttum jafnt sem krullhærðum, konum jafnt sem körlum, í lofti sem á láði, gagnkynhneigðum jafnt sem samkynhneigðum gleðilegrar helgar og vonar að allir hafi það sem allra best.

Engin ummæli: