Sýnir færslur með efnisorðinu Hestamennska. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Hestamennska. Sýna allar færslur

miðvikudagur, 3. febrúar 2010

ÞESSI LEYNIÞRÁÐUR...

Oft hefur verið sagt að á milli manns og hests og hunds hangir leyniþráður. Einhver þráður sem myndast án orða en með fullkomnu samþykki og skilningi. Traust og væntumþykja sem vex með samveru og nánum kynnum.

Ferðalag með þessum félögum, hesti og hundi, um fornar götur fjarri mannabyggð er stórkostleg upplifun. Tilhugsunin um félagsskap þarfasta þjónsins og besta vinar mannsins ásamt brjóstbirtu á pela í fallegri náttúru er einhvern veginn svo fullkomin.

Það er blankalogn á köldum sumardegi, þokan þykk og skyggni ekkert. Smá lögg eftir í pelanum og ennþá tvær brauðsneiðar eftir í hnakktöskunni. Maður löngu búinn að tapa áttum, gjörsamlega villtur og tímaskynið horfið. En á baki hestsins heldur maður áfram með slakan taum, lætur hugann reika, fullur trúnaðartrausts, vitandi vits að hesturinn skilar manni heim, heilum og höldnum.

mánudagur, 25. janúar 2010

Allt verður fullkomið...
Á björtum sumarkvöldum neitar sólin að setjast, hún felur sig kannski í örskamma stund, en birtist svo á nýjan leik og allt verður fullkomið. Það er yndislegt að taka hnakk sinn og hest við slíkar aðstæður og ríða út í kvöldsólinni. Íslenski gæðingurinn tengir mann einhvern veginn við svo ótal margt af því sem gerir Ísland að stórkostlegum stað, sérstöðu landsins í allri sinni dýrð. Í mínum huga eru það mikil forréttindi að eiga föður sem hefur átt hesta í meira en hálfa öld og þekkir að auki sögu okkar ástkæra lands frá upphafi til enda. Allt einhvern veginn í blóðinu, kynslóð eftir kynslóð.

Tilhugsunin um að ferðast á hestum í góðum félagsskap í glitrandi kvöldsólinni um íslenska náttúru er á allan hátt yndisleg. Í föruneyti föður míns fær maður að auki sögu lands og þjóðar beint í æð. Í þessum ferðum segir hann manni sögur af höfðingjum, konungum, biskupum, ribböldum, prestum, þrælum, skáldum, húsfreyjum og hjúafólki. Segir manni sögur af deilum, mannvígum, vígaferlum, drekkingum, bardögum, hestaötum og hefndum.

Sögurnar eru stórkostlegar og eiga það sammerkt, þær gerðust í grenndinni.

föstudagur, 7. ágúst 2009

Með staðfest fyl þessi elska...
Feðgarnir að Seylu ákvaðu að fjárfesta í framtíðinni, kaupa drátt sem var valinn af kostgæfni. Drátturinn kostaði sitt en verður vonandi þess virði. Allt kemur í ljós, einungis spurning um tíma, slatta af þolinmæði og lágstemmdar væntingar.

Æsa Seifsdóttir fór undir Aðal Adamsson...

þriðjudagur, 28. október 2008

Yndislegt skjól...
Kúrbítnum líður einstaklega vel í nærveru hesta, finnst bæði þögnin heillandi og þessi gagnkvæmi skilningur án orða. Þessa dagana er einkanlega yndislegt að komast í þetta skjól á flótta undan krepputali almúgans, ósannfærandi orðræðum ráðamanna og helgislepjutali í auðmönnum þjóðarinnar.

Þar er talað um hesta, konur og brennivín...

miðvikudagur, 2. janúar 2008

Sannkölluð Gleði...
Kúrbíturinn lenti í góðum félagsskap á góðum stað fyrir örfáum dögum. Hesthúsið einhvern veginn svo fullkominn staður fyrir gleðskapinn. Kræsingar úr dölunum eyddu hungrinu, norðlenskt ölið eyddi þorstanum og íslenska brennivínið setti punktinn.

Gleðskapurinn stóð lengi, fór á flug. Ölkrúsir kneyfðar. Ekki allar, allar nema ein. Kúrbíturinn fékk sér margar, ekki flestar og langt því frá allar. Skrafað um hesta frá öllum hliðum og allt um kring. Eftir digurbarkarlegar yfirlýsingar og hástemmd hrósyrði átti sér stað óvæntur og ófyrirséður atburður. Kúrbíturinn keypti sér óséð merfolald í gegnum síma.

Folaldið fékk nafnið Gleði...

föstudagur, 23. nóvember 2007

Ekki sáttur...
Tanni var svo sannarlega ekki tilbúinn að skilja við félaga sína og kíkja til höfuðborgarinnar í fyrsta sinn.

mánudagur, 12. nóvember 2007

Upprás sólarinnar...
Stundum er eins og allt falli saman á sömu stundu. Gerist ekki oft heldur sjaldan.

Hestar, menn og óviðjafnanleg náttúran...





mánudagur, 29. október 2007

Óðfluga...
Nú styttist óðfluga í endurkomu ferfætlingana. Tilhlökkun og gleði einkennir andrúmsloftið. Dagarnir eru taldir, niður en ekki upp. Kúrbíturinn mun njóta lífsins til hins ýtrasta í stórkostlegum félagsskap hesta og manna.

fimmtudagur, 9. ágúst 2007

Minning um meistara...
Kúrbítsfjölskyldan átti eitt sinn hest sem var sannkallaður meistari. Sambland af James Dean, Steve McQueen og Marlon Brando. Meðfæddur töffaraskapur, yndislegir leiðtogahæfileikar og trúr sjálfum sér til dauðadags. Þegar honum fannst þetta orðið gott, lagðist hann á hliðina og sofnaði svefninum langa. Í fallegri sveit á fallegri sumarnóttu.

Blesi var sannkallaður töffari...

þriðjudagur, 7. ágúst 2007

Hláturinn lengir...
Þegar Kúrbíturinn segir skrýtlu þá skella allir upp úr, hvort sem um er að ræða hesta, konur eða menn.

fimmtudagur, 18. janúar 2007

Drátturinn dýri...
Sumt hefur Kúrbíturinn á afrekaskránni, annað ekki. Kúrbíturinn hafði aldrei afrekað það að greiða fyrir drátt á lífsleið sinni, þar til fyrir fáeinum dögum. Einu sinni verður allt fyrst. Drátturinn dýr, greiddur fyrirfram og engar getnaðarvarnir leyfðar.

Kúrbíturinn lagði hausinn í bleyti og vandaði valið. Allt skyldi vera fullkomið. Vó og mat, bæði byggingu og hæfileika. Hugsaði vel og hugsaði lengi.

Meri Kúrbítsins verður leidd undir Aðal frá Nýjabæ...

fimmtudagur, 7. september 2006

Í snertingu við það sem skiptir máli...
Hestamennska kemur manni í snertingu við svo ótal margt af því sem gerir Ísland að stórkostlegum stað. Sérstöðu landsins í allri sinni dýrð.

Ósnortin náttúra, víðátta, hreint loft, hreinskiptið fólk, fallegir hestar og fegurðin í umhverfinu...





mánudagur, 4. september 2006

Yndislegt líf...
Á fögrum sumardegi með yndislegu fólki í ferð á vit ævintýra. Forréttindi. Hestar, mannfólk, fallegt umhverfi, matur og vín skiptir öllu máli. Gleyma öllu nema stund og stað. Allt að baki og ekkert framundan í fjarska. Það er ”núið” sem leikur aðalhlutverkið, hinum tíðunum ekki boðið hlutverk á þessu leiksviði lífsins.

Áfangastaðurinn er falleg sumarhöll umlukin skógi með hesta allt um kring. Ferðalangana klæjar í lófana og iða í skinninu eftir stóru stundinni. Stundin rennur upp, lagt er á gæðingana og riðið um fornar moldargötur í glitrandi kvöldsólinni. Hið óútskýranlega samband á milli manns og hest verður sterkara en aldrei fyrr. Menn, hestar og náttúran verða að órjúfanlegri heild og upplifunin einstök. Landslagið verður að stórfenglegu listaverki sem í síbreytileika sínum lifir þar til sólin sest. Daginn eftir gerist allt á ný en á allt annan hátt. Allt verður til, blómstrar, fölnar og deyr. Enn og aftur, aftur á ný.

Þó sumt taki enda þá tekur annað við. Ósambærilegt, ólíkt og á allt annan hátt. Stórkostlegar kræsingar, unaðsleg vín og skemmtilegur félagsskapur. Lífsgæði sem gera nánustu nútíð að forvitnilegu ævintýri. Undir berum himni situr fólkið, klætt í takt við veðráttuna. Uppfylltar langanir í framboðnar kræsingar. Kræsingarnar bráðna í munnum fólksins og vínið setur punktinn sem skiptir máli.

Þegar nóttin færist yfir er safnast saman við bálköstinn. Kveikt er upp í köstinum og eldsmaturinn verður fljótt eldinum að bráð. Þétt í hring situr fólkið og horfir á eldinn með einhverri stóískri ró. Fram á rauða nótt er drukkið, sungið og skrafað.

Á síðustu metrunum týnist fólkið inn í draumalandið, hvert í sínu lagi en sumir saman. Sumir af ásetningi en aðrir án þess að ráða við eitt né neitt. Flestir komast í hvílu en fáeinir ekki svo langt.

Stundum getur lífið verið stórkostlegt...