miðvikudagur, 3. september 2003

Það er svo oft sem við hugsum að það sé ekkert hægt að gera í Reykjavík. Það er náttúrulega bara vitleysa því Reykjavík býður upp á óteljandi möguleika. Hér á eftir ætla ég að koma með 15 dæmi um skemmtilega hluti senm hægt er að gera í Reykjavík. Síðan ætlið þið að commenta á listann og koma með ykkar hugmyndir. Ég mun síðan uppfæra listann um leið og flottar hugmyndir berast.

Hérna koma mínar hugmyndir um það sem er skemmtilegt að gera í Reykjavík

1. Halda sína eigin menningarnótt, kíkja sem sagt á fullt af söfnum, tónleikum og öðrum atburðum um daginn og hrynja síðan í það að íslenskum sið um nóttina. Þetta er hægt að gera hvenær sem er allan ársins hring. Lifi menningin!!!
2. Kíkja á íslenskan knattspyrnuleik því þá verður maður svo ánægður með knattspyrnuna sem maður sér alltaf í sjónvarpinu. Forza Fylkir!!!!
3. Kíkja á Ölver, horfa á eitt stykki knattspyrnuleik, eina kollu af bjór og eiga tilgangslausar samræður um allt og ekki neitt.
4. Kíkja á kaffihús með félögunum og kjafta saman um einhver mjög svo óarðsama hluti sem engu máli skipta.
5. Labba niður Laugaveginn, skoða í búðarglugga, stunda mannlífsathuganir og kíkja inn á bar í kannski einn eða tvo stóra.
6. Kíkja í kvikmyndahús, horfa á eitt stykki heilalausa bandaríska vellu og uppgötva hvað við erum nú heppin að Ísland tilheyri Evrópu.
7. Kíkja niður í Nauthólsvík, skella sér á ströndina, fá sér bjór og sleikja sólina.
8. Grilla íslenska lambakjötið fyrir vini og vandmenn á svölunum heima, drekka mikið og enda síðan á trúnó fram undir morgun.
9. Fara á Súfistann, fyrir ofan Mál og menningu á Laugaveginum, fá sér stóran latte í skál og ná í öll uppáhaldstímaritin sín, skoða þau þangað til kaffið er búið, jafnvel fá sér annan ef maður er ekki búinn að skoða það sem maður langar til að skoða.
10. Kíkja í leikhús, maður gerir það ekki oft en alveg þess virði.
11. Kíkja upp í Heiðmörk, slappa af, liggja í leti og borða nestið sitt.
12. Fara í sund í Árbæjarlaugina, fara síðan á línuskautum eða hjóli niður í Nauthólsvík og fá sér kaffi á Nauthól.
13. Taka skák við einhvern rosa skákmeistara á Grand Rokk, drekka fullt af bjórum á meðan skákinni stendur og afsaka sig að mikil drykkja hafi orðið til þess að maður tapaði svona illa.
14. Kíkja í Kringluna á laugardegi, tala um það hvers konar fólk kemur hingað i búðaráp á laugardegi og ganga síða út úr Kringlunni 5 klst. síðar klyjaður af pokum eftir velheppnaða verslunarferð eftir allt saman.
15. Fara að borða á góðan veitingastað í miðbæ Reykjavíkur, með fullt af góðum vinum og með "tilbúinn að eyða peningum" hugarfarið. Sitja lengi, drekka mikið og skemmta sér konunglega fram á rauða nótt.


Hér koma síðan þær hugmyndir sem sendar hafa verið inn:

16. Kíkja á Ölver og fá sér nokkra stóra, syngja eins og brjálæðingar í Karaoke og fíla sig sem poppstjörnu í eitt kvöld.
17. Taka sér göngutúr um Þingholtin á fallegu haustkvöldi, skoða húsin og reyna að upplifa stemminguna sem býr í þessu fallega hverfi Reykjavíkur, þar sem sjarminn og stemmingin er einfaldlega meiri en annarsstaðar.

18. Kíkja á Svarta kaffi á Laugaveginum og fá sér hina rómuðu brauðsúpu.

19. Rölta upp í turninn á Hallgrímskirkju og byggingar og mannlíf Reykjavíkurborgar frá þess gæðasjónarhorni. Rölta síðan niður Skólavörðustíginn og kíkja í gallerýin, t.d. er Linda Ólafs með nokkrar góðar myndir í einu þeirra.

20. Bíltúr í bestu ísbúð í heimi, Ísbúðina á Hjarðarhaga, fá sér "gamla" ísinn og keyra svo niður í Skerjafjörð og horfa á blásilfrað ólgandi hafið.

21. Fá sér Tjarnargöngutúrinn og skoða lífið umhverfið Tjörnina....svíkur engan.

22. Að fara í göngutúr í grenjandi rigningu og hávaðaroki um Elliðaárdal eða aðrar perlur Reykjavíkurborgar.

Þetta er ekki tæmandi listi yfir það sem er skemmtilegt að gera í Reykjavík. nú er það ykkar að commenta á þetta og í sameiningu skulum við bæta við og bæta við þennan lista.....

.......verið þið nú dugleg!!!!!

Engin ummæli: