fimmtudagur, 17. nóvember 2005

Ef hann væri minni...
Ef Kúrbíturinn væri einungis hundraðfimmtíuogtveir sentímetrar á hæð hefði hann keypt þennan bíl.

Stórkostlegur bíll fyrir dverga og annað ófullvaxta fólk...


Skyndilausnir og skapahár...
Það er oft þannig að fólk framkvæmir drastískar breytingar á heimilinu sínu, fatastíl, lífsmynstri eða skoðunum. Fyrirvaralaust og allt í einu. Kúrbíturinn er á móti slíkum breytingum. Fólk á að láta stjórnast af viðhorfi sínu til lífsins og því hvernig við viljum lifa lífinu. Umhverfi fólks á að endurspegla persónuleika þess og karakter. Þetta er spurning um að skapa sér stíl sem endurspeglar karakterinn í stað þess að elta það sem er nýmóðins á hverjum tíma eins og viljalaus verkfæri í leit að skyndilausnum á eigin óöryggi og skapahárum.

Þetta er spurning um "evolution" en ekki "revolution"...

Engin ummæli: