föstudagur, 25. nóvember 2005

Spurning um innihald frekar en umbúðir...
Gæti einhver ímyndað sér að í þessu húsi er einn flottasti sushi staðurinn í Mílanó?


Gleðilega helgi...
Kúrbíturinn óskar aðdáendum sínum nær og fjær, til sjávar og til sveita, lágum sem háum, ungum jafnt sem gömlum, dökkhærðum sem ljóshærðum, slétthærðum og skollóttum jafnt sem krullhærðum, konum jafnt sem körlum, í lofti sem á láði, gagnkynhneigðum jafnt sem samkynhneigðum gleðilegrar helgar og vonar að allir hafi það sem allra best.