þriðjudagur, 25. nóvember 2003

Kúrbíturinn........með fréttir frá Ítalíu
Um 55 þúsund manns voru flutt frá heimilum sínum og hótelum í Mílanó á Ítalíu í dag á meðan sprengjusérfræðingar gerðu breska sprengju frá síðari heimsstyrjöldinni óvirka. Sprengjan fannst fyrir nokkrum vikum þegar verið var að grafa fyrir nýrri byggingu. Borgaryfirvöld skipuðu öllum íbúum í 145 götum í borginni að fara að heiman klukkan 7:30 í morgun og fékk fólkið ekki að snúa heim aftur fyrr en klukkan 17 að íslenskum tíma en þá höfðu sérfræðingar hreinsað sprengjuna og gert hana óvirka. Flytja átti sprengjuna á svæði í útjaðri borgarinnar þar sem hún verður sprengd í 5 metra djúpri gryfju.

Kúrbíturinn er óhræddur þrátt fyrir þennan atburð og hlakka til Ítalíuferðar sinnar.

Dagbók Kúrbítsins.....mánudaginn 24. nóvember
Kúrbíturinn gerði fátt í gær sem vert er að minnast á......spriklhúsið, át, kjaftagangur og sjónvarpsgláp.

Í hverju er konan.........
Þetta er ótrúlegt.....konan er í gallabuxum og svörtum ermalausum bol í dag eins og flesta aðra daga.

Kaldhæðni Ástrala
Ástralir hafa jafnan verið þekktir fyrir kaldhæðni. Hér eru nokkrar
spurningar og svör sem birtust á upplýsingavef fyrir ferðamenn sem
stefna á ferð til Ástralíu:

SP: Er einhvern tímann rok í Ástralíu? Ég hef aldrei séð rigningu hjá
ykkur í sjónvarpinu, hvernig fara plönturnar að því að vaxa? (Bretland)
SV: Við flytjum inn fullvaxnar plöntur og sitjum svo og horfum á þær
drepast.

SP: Mun ég sjá kengúrur á vappi á götunum? (USA)
SV: Það fer eftir því hvað þú ert búinn að drekka mikið.

SP: Mig langar að ganga frá Perth til Sidney, get ég fylgt
járnbrautarteinunum? (Svíþjóð)
SV: Jú, jú, ekkert mál, það eru bara 3 þúsund mílur, taktu með þér
slatta af vatni.

SP: Það er mjög mikilvægt að ég fái lista yfir staði sem geta útvegað
mér uppstoppaðar skjaldbökur. (Ítalía)
SV: Ég held við séum ekkert að svara þessu.

SP: Eru hraðbankar í Ástralíu? Getur þú sent mér lista yfir þá í
Brisbane, Cairns, Townsville og Hervey Bay? (Bretland)
SV: Úr hverju dó seinasti þrællinn sem þú áttir?

SP: Getur þú gefið mér upplýsingar um flóðhestakappreiðar í Ástralíu?
(USA)
SV: A-frí-ka er stóra þríhyrnda heimsálfan sunnan við Evrópu, Ás-tra-lía
er stóra eyjan í miðju kyrra-hafinu og þar eru ekki... nei annars
gleymdu þessu. Flóðhestakappreiðarnar eru alltaf á þriðjudögum á Kings
Kross. Komdu nakinn.

SP: Í hvaða átt er norður í Ástralíu? (USA)
SV: Horfðu í suður og snúðu þér um 90 gráður. Hringdu í okkur þegar þú
ert búinn og við sendum þér afganginn af leiðbeiningunum.

SP: Má ég koma með hnífapör til Ástralíu? (Bretland)
SV: Til hvers? Notaðu bara puttana eins og við.

SP: Getur þú sent mér tónleikaskrána fyrir Vínardrengjakórinn? (USA)
SV: Aust-ur-ríki er litla landið við hliðina á Þýskalandi.... nei annars
gleymdu þessu. Vínardrengjakórinn kemur alltaf fram á þriðjudögum á
Kings Kross beint á eftir flóðhestakappreiðunum. Komdu nakinn.

SP: Er hægt að fá ilmvötn í Ástralíu? (Frakkland)
SV: Nei, það er ekki skítalykt af OKKUR.

SP: Ég hef fundið upp nýja vöru sem gefur þér eilífa æsku. Getur þú bent
mér á hvar ég get selt hana í Ástralíu? (USA)
SV: Þú getur selt þetta alls staðar þar sem margir Bandaríkjamenn eru
saman komnir.

SP: Get ég notað háhælaða skó í Ástralíu? (Bretland)
SV: Þú ert breskur pólitíkus, ekki satt?

SP: Getur þú sagt mér á hvaða stöðum í Tasmaníu konur eru í minnihluta?
(Ítalía)
SV: Jebb, á hommabörum.

SP: Haldið þið upp á jólin í Ástralíu? (Frakkland)
SV: Bara á jólunum.

SP: Eru verslanir í Sidney og er hægt að fá mjólk allan ársins hring?
(Þýskaland).
SV: Nei, við erum friðsælt samfélag flækingssafnara og veiðimanna. Mjólk
er ólögleg í Ástralíu.

SP: Vinsamlegast sendu mér lista yfir alla lækna sem geta útvegað
móteitur gegn skröltormabiti. (USA)
SV: Skröltormar lifa í Am-er-íku þar sem ÞÚ býrð. Allir ástralskir
snákar eru meinlausir og eru fínir sem gæludýr.

SP: Ég er með spurningu um fræga skepnu í Ástralíu en man ekki hvað hún
heitir. Það er svona bjarndýr sem býr í trjám. (USA)
SV: Þeir eru kallaðir detti-birnir. Það er af því að þeir láta sig detta
úr trjánum ofan á fólk og éta úr þeim heilann. Þú getur samt varist
þetta með því að hella yfir þig mannaþvagi, þá láta þeir þig í friði ef
þú ert úti að labba.

SP: Ég var í fríi í Ástralíu 1969 og mig langar að hitta stúlku sem ég
var með þá. Getur þú aðstoðað? USA)
SV: Já, ekkert mál, en þú þarft áfram að borga henni fyrir klukkutímann.

SP: Get ég talað ensku á flestum stöðum í Ástralíu? (USA)
SV: Jamm, en þú verður að læra hana fyrst.

Engin ummæli: