föstudagur, 27. janúar 2006

Fáséðar...
Kúrbíturinn var á gangi frá stað A til staðar B. Staður A var Grensásvegur og staður B var Þórsgata. En svo allt í einu og skyndilega var Kúrbíturinn með rusl í hendi. Kúrbíturinn ákvað að henda ruslinu í næstu tunnu sem yrði á vegi hans.

Næsta ruslatunna var staðsett undir vaskinum í íbúð Kúrbítsins við Þórsgötu.

Skringilegt...

Góðir staðir í miðborg Reykjavíkur...
Fríða frænka, Vísir, Grái kötturinn, Ostabúðin, Rauðhetta & úlfurinn, Elvis, Súfistinn, Hamborgarabúlla Tómasar, Kaffitár, Vínberið, Sægreifinn, Rosso Pomodoro, Brynja, Krambúðin, Mokka, Fylgifiskar, Þorsteinn Bergmann, Primavera, Glaumbar...

Stórkostlegt listaverk...
Þetta listaverk kom fullskapað af frönsku færibandi árið 1972.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mig hefur leeengi lengi langad i svona bil.. Stefni a ad fjarfesta i einum svona a arinu 2007..

Thetta er Tiskan i milan er talar.... fra Milan..

Nafnlaus sagði...

geðveikur bíll, ég skora á kúrbítinn að fá sér svo tæki!

Nafnlaus sagði...

Allt hefur sinn tíma. Spurning um hvenær, ekki hvort...